Þann 15. desember sl. tilkynnti Kvika banki hf. („félagið“) að stjórn hefði nýtt heimild sína samkvæmt bráðabirgðaákvæði II í samþykktum félagsins til að hækka hlutafé þess um kr. 4.625.000 að nafnvirði í þeim tilgangi að mæta nýtingu áskriftarréttinda. Samkvæmt 19. gr. laga um upplýsingaskyldu útgefanda verðbréfa og flöggunarskyldu nr. 20/2021 skal útgefandi, ef hann hækkar eða lækkar hlutafé sitt eða fjölgar eða fækkar atkvæðum, við fyrsta tækifæri og eigi síðar en á síðasta viðskiptadegi mánaðar birta opinberlega heildarfjölda hluta og heildarfjölda atkvæða.Framangreind hlutafjárhækkun hefur nú verið skráð hjá Fyrirtækjaskrá Skattsins og hlutafé félagsins stendur í kr. 4.928.896.980 að nafnvirði. Hver hlutur er að fjárhæð ein króna og eitt atkvæði fylgir hverri einni krónu í hlutafé utan eigin hluta. Af framangreindum hlutum á bankinn í dag 147.871.265 eigin hluti. Óskað verður eftir því að hinir nýju hlutir verði gefnir út af Nasdaq verðbréfamiðstöð og sótt verður um töku þeirra til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Eftir nýtingu áskriftarréttinda sem tilkynnt var um þann 15. desember sl. hafa öll áskriftarréttindi sem gefin voru út og seld á árunum 2017-2019 verið fullnýtt eða fallið niður og því engin réttindi samkvæmt þeim útgáfum útistandandi.